Veit eg að eg hékk vindgameiði á nætur allar níu, geiri undaður og gefinn Óðni, sjálfur sjálfum mér, á þeim meiði er manngi veit hvers af rótum renn. Við hleifi mig sældu né við horni-gi. Nýsta eg niður, nam eg upp rúnar, æpandi nam, féll eg aftur þaðan. Fimbulljóð níu nam ef af inum frægja syni Bölþorns, Bestlu föður. Og eg drykk of gat ins dýra mjaðar, ausin Óðreri. Þá nam eg frævast og fróður vera og vaxa og vel hafast, orð mér af orði orðs leitaði, verk mér af verki verks leitaði. Rúnar munt þú finna og ráðna stafi, mjög stóra stafi, mjög stinna stafi, er fáði fimbulþulur og gerðu ginnregin og reist Hroftur rögna. Óðinn með ásum, en fyr álfum Dáinn, Dvalinn dvergum fyrir, Ásviður jötnum fyrir. Eg reist sjálfur sumar. Veistu hve rí
Инфа — 27%