викенги Sæmundaredda er frægt íslenskt skinnhandrit frá um 1280. Í því er að finna fornan kveðskap sem venja er að skipta í tvo flokka, goðakvæði og hetjukvæði. Hvað „edda“ þýðir er óvíst, en það tengist skáldskaparfræði (sjá Snorra-Edda). Brynjólfur Sveinsson gaf Friðriki 3. Danakonungi handritið árið 1643 og var það geymt á Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn. Konungsbókin var afhent Íslendingum 21. apríl 1971 ásamt Flateyjarbók og er nú geymd á Stofnun Árna Magnússonar.
Инфа — 8%